Landskrifstofur Menntaáætlunar ESB

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

hnappur_nsn.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

Verkefnabankar ESB


EVE verkefnaabankinn

Eve er upplýsingagátt fyrir verkefni innan evrópsku mennta- og ungmennaáætlunarinnar. Hér er hægt að nálgast þúsundir verkefna og afurðir Leonardo, Comenius, Erasmus og Grundtvig verkefna, einnig íslenskra.  Eve heldur utan um verkefni sem styrk hafa verið af Evrópusambandinu. Í gegnum Eve geturðu fengið aðgang að ýmis konar námsefni, handbókum, ljósmyndum og mörgu fleira.

Í Eve ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi!

http://ec.europa.eu/eve


EST verkefnabankinn

EST, European Shared Treasure, er gagnabanki fyrir Comenius, Leonardo og Grundtvig samstarfsverkefni. Honum er ætlað að auka sýnileika verkefna og bæta aðgengi að upplýsingum um afurðir verkefna.

 


Adam verkefnabankinn

ADAM er gagnabanki sem ætlað er að miðla verkefnum og afurðum innan Leonardo hluta Menntaáætlunar ESB.

Sífellt koma fram á sjónarsviðið nýjar afurðir Leonardó verkefna sem eru sérsniðnar að kröfum starfsmenntunar í skólum og fyrirtækjum.

Með því að nýta þér ADAM - gagnagrunninn geturðu aflað þér upplýsinga um afurðir Leonardó verkefna. Til þess eru tvær leiðir: Annað hvort slærðu inn leitarorð inn í reitinn "Search for Projects and Products" og þá færðu upplýsingar úr gagnagrunninum um þau verkefni sem samsvara leitarorðum þínum eða þú getur gert ítarlegri leit með því að smella á "Extended Search".

Ert þú verkefnisstjóri Leonardo verkefnis og vilt gera afurðir verkefnis þíns aðgengilegar almenningin? Skráðu þá verkefnið þitt í ADAM gagnagrunninn.

Heimasíða gagnabankans er: www.adam-europe.eu

Hér geturðu sótt handbók fyrir notendur á ensku (PDF)