Umsóknarfrestur: 21. febrúar 2012 ár og er verkefnistími 2 ár, frá 1.ágúst – 31. Júli. Sameiginlegri umsóknin er skilað inn í grunn af verkefnisstjóra en allir þátttakendur skila inn umsókn undirritaðri fyrir umsóknarfrest.
Verkefnisstjóri og hlutverk
Ef að verkefnisstjórn hvílir íslenskum þátttakanda þá er það hans að fylla út rafræna umsókn og ýta á „submit“ takkann í umsókn og þá fer hún í samevrópskan grunn.
Verkefnisstjóri ber ábyrgð á:
- Að allir þátttakendur setji inn í umsókn lýsingu á þátttöku og hlutverki ásamt fjölda ferða og styrktaruppæð.
- Að allir þátttakendur séu sammála um loka-útlit umsóknar m.t.t. innihalds áður en hún er send í gagnagrunn „submit“.
- Verkefnisstjóri geymir PDF skjalið útfyllt á sinni tölvu sem forstöðumaður /framkvæmdastjóri skrifar síðan undir og stimplar með réttri dagsetningu og sendir á landskrifstofu Háskólatorgi.
-
Pdf skjalið er sent til allra þátttakenda sem síðan áframsenda undirritað af sínum forstöðumönnum til til sinna Grundtvig - landskrifstofa. Mjög mikilvægt að senda inn undirritað eintak af öllum þátttakendum því ef það gleymist er þátttakandinn ekki gildur í verkefninu.
Þátttakandi í samstarfsverkefni?
Yfirmenn undirrita PDF umsókn sem þeir fá senda af verkefnisstjóra og senda síðan póstleiðis. Póststimpill verður að vera á dagsetningu umsóknarfrests eða fyrr annars er hún ógild.
Styrkupphæðir
Samþykkt verkefni fá ákveðinn styrk sem miðast við fjölda einstaklingsferða til 2 ára (ath. Sami einstaklingur getur farið í fleiri en 1 ferð) Styrkupphæðir miðast við fjölda ferða í verkefni.
Styrkur 2012 til íslenskra þátttakenda í samstarfsverkefni er:
| Fjöldi ferða í verkefnum | Styrkupphæð |
| 4 ferðir á tveimur árum | 8000 € |
| 8 ferðir á tveimur árum | 12.000 € |
| 12 ferðir á tveimur árum | 18.000 € |
| 24 ferðir á tveimur árum * | 25.000 € |
* Miðast við a.m.k. 16 nemendum í fullorðinsfræðslu taki þátt og fari með á fundi. Farið er fram á röksemdarfærslu um nýtileika fyrir nemendur að ferðast 25.000 €
Í lokaskýrslu til landskrifstofu þarf að koma fram fjöldi ferða, ásamt ferðareikningum og brottfaraspjöld
Forgangsatriði 2012
- Virk þátttaka styrkþega innan verkefna, þ.e. nemendur, starfsfók, kennarar taki þátt og að minnst 10 manns séu virkir í verkefninu í hverri stofnun.
- Miðað er við að einungis berist ein umsókn frá lögaðila en sé um að ræða stærri fyrritæki með a.m.k. 25 starfsmenn sem sinni mismunandi starfssviðum og markhópum hjá sömu stofnun/fyrirtæki er leyfilegt að sendi inn allt 2 umsóknir á ári
Mat /val á umsóknum
Samstarfsverkefni eru metin af a.m.k. tveimur sérfræðingum (einum utanaðkomandi) í því landi sem verkefnistjórinn tilheyrir. Matið liggur í punktagjöf (- 100) og einnig er hægt að bæta við punktagjöf frá hverju landi fyrir sig ef að þau hafa tilgreint sérstök landsforgangsatriði. Til að verkefni hljóti styrk þurfa a.m.k. 3 lönd að vera þátttakendur í verkefninu. Venjulega liggur niðurstaða um styrkt verkefni fyrir í lok júní.
Þegar umsókn er metin skiptir máli:
- Að umsókn berist á réttum tíma
- Að samtarfsverkefnið heyri undir málefni fullorðinsfræðslu
- Að almenn þátttaka í samstarfinu eigi sér stað og allir komi að vinnu í því og njóti afraksturs.
- Almenn og virk þátttaka nemenda og fullorðinsfræðsluaðila innan stofnunar
- Að nemendur sé virkjaðar til þátttöku frá upphafi í undirbúning, starf og mat í lokin
- Að miðlun niðurstaða eigi sér stað þegar verkefni lýkur og mat á vinnu liggir fyrir.
- Að samstarfið endurspegli fjölbreytta þátttöku stofnana í Evrópu sem njóti góðs af vinnunni
Góð ráð og upplýsingar um verkferla t.d. hvað varðar dreifingu niðurstaðna er að finna á QAS-manualen (heimasíðu) og
Grundtvig Navigator (pdf-fil).
Ef þú vilt vita meira um Grundtvig eða menntaáætlun ESB heimasíðu ESB: europa.eu/education
Nánari upplýsingar veita ask@hi.is, Ann-Helen Odberg annhelen@hi.is sími 525 5813


