Mannaskiptaverkefni FNS og Evrópumiðstöðvar
Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar og Félag náms- og starfsráðgjafa taka bæði þátt í mannaskiptaverkefnum. Þeim er ætlað að efla hreyfanleika milli landa og styrkja fólk til að afla sér reynslu og þekkingar innan síns fagsviðs í öðrum Evrópulöndum
Bæði verkefnin eru styrkt af Leonardó da Vinci áætlun Evrópusambandins og er styrkupphæðin fyrir hvern einstakling sú sama. Samkvæmt þeim samningi sem gilda mun fyrir árin 2007-2009 verður ferðastyrkur að hámarki 500 evrur (samkvæmt kvittunum) og dagpeningar (föst upphæð) 500 evrur á viku.
Academia
Markmið Academia námskeiða sem Evrópumiðstöðin býður upp á er að auðvelda náms- og starfsráðgjöfum að fara í styttri námsferðir til annarra Evrópulanda til að fræðast þar um störf ráðgjafa í viðkomandi landi, menntakerfi og/eða fyrirkomulag á vinnumarkaði.
Heimsóknirnar fara þannig fram að hvert þátttökulandanna, sem eru liðlega tuttugu talsins, skipuleggur námskeið sem að öllu jöfnu stendur yfir í fimm virka daga. Þar er gefið yfirlit yfir samfélag og opinber kerfi viðkomandi lands og farið í heimsóknir til stofnana og fyrirtækja þar sem ráðgjafar eru að störfum. Einnig eru oft tekin fyrir ákveðin þemu sem eru mikilvæg í faglegri umræðu um ráðgjöf.
Þátttaka í Academia skapar afar mikilvæg tækifæri fyrir íslenska ráðgjafa til að kynnast því sem best er gert erlendis og miðla af þeirri reynslu sem þeir hafa öðlast hér heima í störfum sínum. Academia verkefnið skapar því á hverju ári mikilvægan vettvang fyrir umtalsverða miðlun reynslu og þekkingar á milli íslenskra og erlendra ráðgjafa.
Frekari upplýsingar veitir Dóra Stefánsdóttir
Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar
Tæknigarði
Dunhaga 5
107 Reykjavík
ds(hjá)hi.is
Mannaskiptanámskeið FNS
FNS býður upp á almenna styrki til mannskipta til nokkurra landa í Evrópu. Sértæk markmið FNS með verkefninu er að gefa íslenskum náms- og starfsráðgjöfum tækifæri til að koma á tengslum við evrópska náms- og starfsráðgjafa, kynnast uppbyggingu náms- og starfsráðgjafar í mismunandi Evrópulöndum og skiptast á skoðunum. FNS hefur sem áhersluatriði brottfall í sem víðustum skilningi og þá stefnumörkun í náms- og starfsráðgjöf sem er að eiga sér stað í Evrópu.
Frekari upplýsingar veitir
Jónína Kárdal
Lundarbrekku 10
200 Kópavogi
joninaka(hjá)hi.is





