Evrópusambandið hvetur til samvinnu um stefnumótun í náms- og starfsráðgjöf, rétt eins og um stefnumótun í menntun almennt. Komið hefur verið á fót sérstökum samstarfshópi í þessu skyni og hittist hann nokkrum sinnum á ári og ræður ráðum sínum. Hann hefur sett upp sérstakan vef þar sem allar upplýsingar um það sem rætt er liggja fyrir og hægt er að lesa alla pappíra sem lagðir eru fyrir hvern fund.





