Góð leið til að kynnast menntun og starfsþjálfun annars staðar í Evrópu.
Námsheimsóknirnar eru ein af þveráætlun Menntaáætlunarinnar og er þeim ætlað að styðja við stefnumótun og samstarf í Evrópu með tilvísun í Lissabon ferlið, Menntun og þjálfun 2010, Bologna og Kaupmannahafnar yfirlýsingarnar.
Námsheimsóknir til Evrópu eru áhugaverður kostur!
Áætlun um námsheimsóknir (áður CEDEFOP námsheimsóknir) er fyrir stefnumótendur, þá sem taka ákvarðanir og sérfræðinga á sviði menntunar og almennrar starfsþjálfunar. Áætlunin felst í því, að boðið er í 3-5 daga námsheimsóknir til 31 Evrópuríkis, þar sem menntun er kynnt út frá fyrirfram ákveðnum sjónarhóli. Árangursríkar og stefnumótandi aðgerðir eru kynntar ásamt sýnishornum af góðri framkvæmd í öðrum ríkjum. Þá gefst einnig kostur á því að hitta starfssystkini hvaðanæva að í Evrópu. Námsheimsóknir eru góður vettvangur til að mynda ný tengslanet til framtíðar.
Hverjir geta tekið þátt í heimsóknunum?
Fulltrúar launþegasamtaka og vinnuveitenda geta tekið þátt í námsheimsóknum. Einnig geta stjórnendur og umsjónarmenn þjálfunar í litlum og meðalstórum fyrirtækjum, verslunarstjórar, fulltrúar verslunar- og viðskiptaráða þátttökuríkja, stjórnendur í starfsmenntun, hvort heldur hún er einkarekin eða opinber, tekið þátt.
Hvaða svið er hægt að kynna sér ?
• Framfarir hvað varðar aðgang, jafnræði, gæði og skilvirkni í menntun og þjálfun
• Menntun og þjálfun sem miðar að því að styrkja stöðu einstaklinga á vinnumarkaði
• Framkvæmd sameiginlegra evrópskra staðla, meginreglna og ramma fyrir símenntun
• Stefnur og viðfangsefni í stefnumótun símenntunar
Hvert er hægt að fara?
Boðið er upp á námsheimsóknir í 27 aðildarríkjum ESB, á Íslandi, í Liechtenstein, Noregi og Tyrklandi. Í flestum heimsóknum er töluð enska, en einnig er hægt að velja heimsóknir þar sem töluð er þýska, franska eða spænska.
Upplýsingar um námsheimsóknirnar
Gefið er út yfirlitsrit með kynningu á öllum þeim nær 400 heimsóknum sem standa til boða á næsta ári.
Kostnaður?
Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB veitir styrki til námsheimsókna, reiknað er með styrkur nægi fyrir ferð og uppihaldi að mestu.
Umsóknarfrestir og umsóknir:
Umsóknarfrestur fyrir tímabilið mars 2012 - júní 2012 er 30. mars 2012, og fyrir tímabilið september 2012 - febrúar 2013.12. okóber 2012.
Fylla þarf út eyðublað á netinu og senda útprentun af því til Landsskrifstofu Menntaáætlunarinnar. Yfirlitsritið og nánari upplýsingar eru hér og hjá Ástu Sif Erlingsdóttur, netfang: astasif hja hi.is
Upplýsingabæklingur sérstaklega ætlaður aðilum vinnumarkaðarins.


