Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

Bologna_logo_f_haegri


europass_logo.jpg

euroguidance_logo.jpg

banner_vertical.gif

Í hnotskurn má segja að Europass sé safnheiti yfir staðlaða menntunar- og starfshæfnimöppu. Meginmarkmiðið með Europass er að auðvelda gegnsæi menntunar og starfsreynslu, bæði heima og að heiman. Europass er einnig ætlað að auðvelda samhæfingu prófskírteina og viðurkenninga og þar með auðvelda samanburð menntunar og reynslu yfir landamæri í Evrópu. Vonast er til að frumkvæðið verði til þess að auka hreyfanleika fólks á milli landa, bæði vegna menntunar og atvinnu.
 

Hvað er Europass?

Í Europass möppunni eru fimm skírteini eða skjöl sem tengja má hvert öðru. Hægt er að nota öll fimm skírteinin í einu eða hvert fyrir sig. Þau lýsa mismunandi þáttum í menntun, starfsþjálfun, starfsreynslu, tungumála- og menningarreynslu, auk óformlegri þátta eins og persónulegri hæfni einstaklings. Í möppunni, sem er samhæfð fyrir öll lönd Evrópu, eru því öll skírteini sem skipta máli vegna menntunar- og starfshæfni einstaklings.

Hægt er að safna eftirfarandi skírteinum í möppuna:

Fyrir hvern er Europass?

Europass er fyrir alla, óháð aldri, sem vilja skjalfesta nám sitt og/eða reynslu í 32 þátttökulöndum innan Evrópu.
 

Hvernig má nálgast Europass skírteinin?

Aðgengi að skírteinunum er mismunandi. Ferilskrá og tungumálavegabréf fylla einstaklingar út sjálfir, annað hvort rafrænt eða á pappír. Viðaukar við prófskírteini fylgja öllum íslenskum háskólaprófum og mat og viðurkenning á starfsmenntun er aðgengilegt á þessari heimasíðu verkefnisins og á menntagatt.is. Starfsmenntavegabréf þarf hins vegar að sækja um til Europass skrifstofunnar.
 

Upplýsingar

Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands hefur umsjón með og sér um kynningu á Europass á Íslandi. Verkefnisstjóri Europass á Íslandi er Dóra Stefánsdóttir, netfang hennar er: ds(hjá)hi.is.
 

Könnun

Um þessar mundir fer fram könnun á notagildi Europass skjalanna. Smellið hér til þess að taka þátt og fáið við það möguleika á að vinna MP3 spilara af nýjustu gerð.