Um 65 Evrópumiðstöðvar í náms- og starfsráðgjöf í 32 löndum mynda með sér samstarfsnet sem á að styðja við alla þá sem veita náms og starfsráðgjöf og hvetja til hvers kyns samstarfs og þróunar á nýjungum í faginu.
Þetta samstarfsnet er fjármagnað að hluta til af ESB en hvert land greiðir að minnsta kosti helming kostnaðar. Á vef netsins má finna margvíslegar upplýsingar um náms- og starfsráðgjöf í Evrópu auk beinna tenginga inn á vefi allra Evrópumiðstöðvanna. Þar birtist tvisvar á ári fréttabréf fyrst og fremst ætlað náms- og starfsráðgjöfum með upplýsingum um ýmis fjölþjóðleg verkefni eða áherslur sem tengjast starfi þeirra.
Heimasíða Euroguidance netsins
Á síðunni sem birtist skal tungumál valið, is er fyrir íslensku.
Yfirlit yfir íslenska menntakerfið
Fyrir evrópska náms- og starfsráðgjafa hafa verið teknar saman nokkar upplýsingar á ensku um íslenska menntakerfið.




