Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

Bologna_logo_f_haegri


europass_logo.jpg

EG_20

banner_vertical.gif
sitrona

Þarfir þeirra sem fara héðan til náms eða starfsþjálfunar í öðru landi eru talsvert ólíkar þörfum þeirra sem hingað koma í sama tilgangi.

Þeir sem fara

Þeir sem ætla að fara til útlanda í nám hafa hingað til verið sá hópur sem krefst mestrar leiðsagnar frá náms- og starfsráðgjöfum. Sumir þeirra hafa einnig samband við ráðgjafann sinn meðan á dvölinni stendur og sumir þurfa aðstoð þegar heim er komið.

  • Ráðgjöf áður en haldið er af stað tekur til alls undirbúnings dvalarinnar og þess að negla niður til hvers hún á að leiða.
  • Ráðgjöf meðan dvöl stendur felst í að fylgjast með nemanum, hvernig honum gengur aðlögunin og námið og að búa til einhvers konar hjálparáætlun ef hann skyldi lenda í vanda.
  • Ráðgjöf eftir að komið er heim felst í að farið er í gegnum það sem neminn lærði, hvort heldur er persónulega reynslu eða það sem í náminu fólst, og honum hjálpað að nýta sér það við frekara nám eða starf.

Frekari upplýsingar um þá sem fara í nám til útlanda eru á síðunni leiðbeiningar um undirbúning námsdvalar.

Þeir sem koma

Hingað kemur sívaxandi fjöldi erlendra námsmanna til lengri og skemmri dvalar. Þetta á sérstaklega við um námsmenn á háskólastigi þar sem nám á ensku hefur aukist og skólarnir hafa komist í tengsl við erlenda háskóla. Eitthvað er einnig um erlenda skiptinema í íslenskum framhaldsskólum.

Hérlendir náms- og starfsráðgjafar reyna eins og þeir geta að sinna þessum nemum. Sumir nemanna eru þó enn í tengslum við ráðgjafa í heimalandi sínu og því getur þörfin verið minni en hjá innlendum nemendum. Oftast er hlutverk náms- og starfsráðgjafans að hjálpa hinum erlenda nema við að fá upplýsingar um allt mögulegt hvað varðar sjálft námið og hugsanlega einkalífið. Sumir lenda í skyndilegum vanda og leita þá hugsanlega til náms- eða starfsráðgjafa sem þá þarf að bregðast skjótt við.

Stundum leita nemendur frá öðrum löndum einnig til náms- og starfsráðgjafa með ýmsar fyrirspurnir um nám eða starfsþjálfun. Hafi náms- og starfsráðgjafi slíkar upplýsingar ekki við höndina er best að vísa á Alþjóðaskrifsofu háskólastigsins sem hefur upplýsingar um alla skóla hér á landi og getur svarað spurningum um nemendapláss eða lágmarkskröfur.

Best er að beina þeim sem spyrjast fyrir um störf á Íslandi á skrifstofur Evrópsku vinnumiðlunarinnar.

 Áfram í verkfærakistunni – margar leiðir dvalar í útlöndum