Ekki er sjálfgefið að allir sem fara til útlanda í nám hafi mikið gagn af dvölinni hvað nám varðar. Illa skipulögð námsferð til útlanda getur leitt til hins gagnstæða. Hafa verður í huga að yfirleitt fylgist enginn með námsmönnum í útlöndum á sama hátt og gert er hér heima og því bera þeir meiri ábyrgð á því að læra sem mest sjálfir. Hvernig það gengur fer svo eftir ýmsu sem náms- og starfsráðgjafi getur aðstoðað þá við:
Kynni af landinu
Mjög mikilvægt er að nemendur reyni að komst í eins mikil tengsl og unnt er við fólkið í landinu sem þeir búa í. Þess vegna verða þeir að reyna að læra eins mikið í tungumáli þess og þeir mögulega geta áður en þeir leggja af stað og reyna að kynnast menningu þess eftir mætti. Margar þjóðir hafa komið sér upp upplýsingarvefjum og/eða gefið út rit með greinargóðum fróðleik um land og þjóð. Það skiptir líka máli hvort einstaklingurinn leggur af stað einn og sér eða hvort hann er hluti af stærri hópi.
Ábyrgð
Námstíma í útlöndum má líkja við nám sem byggist á því að leysa hvers kyns vandamál þar sem neminn þarf að takast á við nýja hluti og finna eigin leiðir að settu marki. Þetta leiðir til mikils þroska en meðan á tímabilinu stendur geta erfiðleikarnir vaxið honum í augum. Mikilvægt er að óvissan sé ekki meiri en hann ræður við þótt gæta verði þess líka að ofvernda hann ekki.
Yfirfærsla
Yfirfærsla af reynslu að heiman getur hjálpað nemendum að takast á við nýjar aðstæður þannig að hann skilji hvað er að gerast. Ef nýjar aðstæður verða allt of ólíkar því sem hann er vanur er hætta á að hann sjái ekki neina þýðingu með því sem hann er að læra, hversu áhugavert sem það annars kann að vera. Því getur hann skilið mest af því sem hann lærir eftir í námslandinu og komið heim með tómar lærdómstöskur.
Umhugsun
Hinn raunverulegi lærdómur á sér stað þegar neminn hugsar um það sem hann upplifði í námslandinu og nýtir það í lífi sínu þegar hann er kominn heim. Þetta er viðkvæmt ferli þar sem það versta sem getur gerst er að allri reynslunni frá námslandinu er hent út í hafsauga. Því er mikilvægt að styðja nemann á ýmsan hátt við þessa vinnu, bæði áður en hann fer út og eftir að hann kemur heim.
Frekari upplýsingar um lærdóm
Hægt er að lesa um lærdóm í útlöndum í ritinu Learning by Leaving sem gefið var út hjá Cedefop árið 2004.
Þá er hér stuttur texti um tilgang náms í útlöndum.
Áfram í verkfærakistunni – margar hliðar náms- og starfsráðgjafar




