European Centre for Modern Languages (ECML)
Auglýsing eftir umsóknum um verkefni (Call for Proposals 2008-2011)
Ísland gerðist aðili að Tungumálamiðstöðinni í Graz (ECML) hinn 1. janúar 1998 og er eitt 33 aðildarlanda. Tungumálamiðstöðin er stofnun á vegum Evrópuráðsins og starfar á grundvelli sérstaks samkomulags við það. Miðstöðin var stofnuð árið 1994 að frumkvæði Austurríkis og Hollands. Önnur aðildarlönd eru: Albanía, Andorra, Armenía, Bosnía- Herzegovína, Bretland, Búlgaría, Eistland, Finnland, Frakkland, fyrrverandi lýðveldi Júgóslavíu: Makedónía, Grikkland, Írland, Lettland, Liechtenstein, Litháen, Lúxembúrg, Króatía, Kýpur, Malta, Noregur, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Sviss, Svíþjóð, Tékkland, Ungverjaland og Þýskaland.
Hlutverk
Hlutverk Tungumálamiðstöðvarinnar í Graz er að efla og styðja við nám og kennslu í tungumálum í Evrópu. Starfsemi tungumálamiðstöðvarinnar felst m.a. í skipulagningu námskeiða/ vinnustofa (workshops) í Graz og víðar. Einnig er á vegum stofnunarinnar unnið að margvíslegum þróunar- og rannsóknarverkefnum á sviði tungumálanáms og tungumálakennslu í tengslum við vinnustofur/námskeið. Aðildarlönd geta almennt sent einn þátttakanda á hvert námskeið (vinnustofu) sér að kostnaðarlausu.
Umsjón
Menntamálaráðuneytið á fulltrúa í stjórnarnefnd Tungumálamiðastöðvarinnar í Graz, en hefur falið Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins, Háskólatorgi, Reykjavík ýmsa framkvæmd þátttökunnar, svo sem kynningu og vinnu við að senda þátttakendur á vinnustofur.
Umsjón á Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins:
- Ragnhildur Zoëga, sími: 525 5813, netfang: rz(hjá)hi.is
Fulltrúi í stjórnarnefnd tungumálamiðstöðvarinnar:
- Erna Árnadóttir, menntamálaráðuneyti, sími: 545 9500, netfang: erna.arnadottir(hjá)mrn.stjr.is
Tilnefningar
Tilnefningaraðilar vegna þátttöku Íslendinga í vinnustofum:
- Erna Árnadóttir, menntamálaráðuneyti
- Eyjólfur Már Sigurðsson, tungumálamiðstöð HÍ
- Ragnhildur Zoëga, Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins.
Upplýsingar
Nánari upplýsingar um hlutverk og starfsemi Tungumálamiðstöðvarinnar í Graz er að finna á heimasíðu hennar. Á henni er meðal annars einnig að finna dagskrá, skýrslur frá vinnustofum og upplýsingar um útgefin rit.





