Erasmus - háskólastigið
Erasmus, háskólaáætlun Evrópusambandsins, er ætlað að stuðla að auknu samstarfi meðal háskóla í Evrópu. Áætlunin styrkir ýmis konar verkefni, svo sem stúdenta og kennaraskipti, námsferðir starfsfólks háskóla og fólks í atvinnulífinu, sameiginlegt námskeiðahald, og fleira. Þannig styður Erasmus Bologna ferlið, sem stefnir að samfelldu evrópsku háskólasamfélagi.
Veigamesti þáttur í Erasmus áætluninni er að stuðla að hreyfanleika fólks úr háskólasamfélaginu um Evrópu. Í boði eru margvíslegir styrkir til stúdenta, kennara og starfsfólks og stærri samstarfsverkefni háskóla.


